Gjafir til setursins
Kötlusetri hafa borist gjafir frá nokkrum aðilum.
Ættingjar Eyjólfs Guðmundssonar frá Hvoli
gáfu tvö sett af bókunum Minningar úr Mýrdal eftir Eyjólf Guðmundsson frá Hvoli.
Menningarfélag um Brydebúð
hélt Bingó til styrktar Kötlusetri á Menningarhátíð Mýrdælinga – Regnboganum. Þar söfnuðust alls 270.500 kr.
Menningarfélagið um Brydebúð
fékk að gjöf 2 myndir saumaðar af Sighvati Gíslasyni. Þessar myndir runnu til Kötluseturs og þakkar Kötlusetur vel fyrir þessar fallegu myndir. Myndinar eru nú sýnilegar í anddyri Kötluseturs.
Menningarfélagið um Brydebúð
hefur einnig styrkt Kötlusetur reglulega með peningum.
2014: Menningarfélag um Brydebúð
keypti ljóskastara sem settur var upp í Skaftfellingsskemmunni og lýsir nú upp Skaftfelling allt árið. Einnig gaf Menningarfélagið skilti utaná Skaftfellingsskemmuna og segja frá sögu Skaftfellings og merkja húsið. Kötlusetur þakkar kærlega fyrir þessar gjafir og metur þær mikils.
Byggðasafnið á Skógum
gaf Kötlusetri upplag af Fréttabúa og Goðasteini. Þarna eru ómetanlegar heimildir og mikið af greinum og efni sem hvergi annarsstaðar hefur verið birt.
Frá Sólrúnu Jónsdóttur
og Steinunni Helgu Lárusdóttir
Þessi gjöf var gefin Menningarfélagi um Brydebúð en rann til Kötluseturs eftir að það var stofnað. Myndirnar eru til sýnis í anddyri Kötluseturs.
Gjöfin: Tvær útsaumaðar myndir til eignar. Um er að ræða krosssaumsmyndir sem saumaðar voru af Sighvati Gíslasyni en hann bjó, ásamt konu sinni Hólmfríði Guðmundsdóttur, í Vík í áratugi.
Frá Jóni Gunnari Jónssyni
Jón Gunnar var forsjáll maður og á sínum tíma þegar Kaupfélag Vestur-Skaftfellinga var lagt af fékk hann að hirða síðustu vigtina sem þar var notuð. Þegar hann flutti úr íbúðarhúsi sínu nú nýverið gaf hann Kötlusetri vigtina ásamt úðabrúsa úr kopar.
Byggðasafnið á Skógum
hefur sýnt Kötlusetri stuðning með því að gefa því upplag af Fréttabúa og Goðasteini frá upphafi.
Þakkar Kötlusetur kærlega fyrir þessar gjafir og ómetanlegan stuðnig.